Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 10. máls.
134. löggjafarþing 2007.
Þskj. 10 — 10. mál.
um breytingu á lögum um þingsköp Alþingis, nr. 55/1991, sbr. lög nr. 74/1992, 102/1993 og 68/2007.
a. 2. tölul. 1. mgr. orðast svo: Efnahags- og skattanefnd; og jafnframt bætist nýr töluliður við sömu málsgrein, í stafrófsröð, svohljóðandi: Viðskiptanefnd.
b. 3. tölul. 1. mgr. orðast svo: Félags- og tryggingamálanefnd; og 5. tölul. sömu málsgreinar orðast svo: Heilbrigðisnefnd.
c. 7. tölul. 1. mgr. fellur brott og jafnframt orðast 10. tölul., er verður 9. tölul., sömu málsgreinar svo: Sjávarútvegs- og landbúnaðarnefnd.
Frumvarp til breytingar á lögum um þingsköp Alþingis, nr. 55/1991, með síðari breytingum, er hér lagt fram til samræmis við frumvarp til laga um breytingu á lögum um Stjórnarráð Íslands, nr. 73/1969, sem þingflokkar stjórnarflokkanna hafa sameinast um að flutt verði og ráðgera að verði afgreitt á þessu þingi. Með breytingum á þeim lögum verða ráðuneyti sameinuð og breytingar gerðar á heitum ráðuneyta vegna tilfærslu á málaflokkum milli þeirra. Skipan og heiti fastanefnda Alþingis hafa tekið mið af heitum ráðuneyta og skiptingu málaflokka milli þeirra og er í 1. mgr. 23. gr. þingskapa kveðið á um að vísa skuli frumvörpum, þingsályktunartillögum og skýrslum til nefnda eftir efni þeirra og hafa um það hliðsjón af skiptingu málefna í Stjórnarráðinu. Þingnefndir eru samkvæmt nýlegum breytingum á þingsköpum kosnar fyrir allt kjörtímabilið og því mikilvægt að nefndaskipan liggi fyrir þegar í upphafi kjörtímabils og miðist við það hvernig skipan Stjórnarráðsins er ætlað að verða. Með þessu frumvarpi verður því samræmi milli heita ráðuneyta og fastanefnda þingsins og málaflokka.
134. löggjafarþing 2007.
Þskj. 10 — 10. mál.
Frumvarp til laga
um breytingu á lögum um þingsköp Alþingis, nr. 55/1991, sbr. lög nr. 74/1992, 102/1993 og 68/2007.
Flm.: Arnbjörg Sveinsdóttir, Lúðvík Bergvinsson.
1. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 13. gr. laganna:a. 2. tölul. 1. mgr. orðast svo: Efnahags- og skattanefnd; og jafnframt bætist nýr töluliður við sömu málsgrein, í stafrófsröð, svohljóðandi: Viðskiptanefnd.
b. 3. tölul. 1. mgr. orðast svo: Félags- og tryggingamálanefnd; og 5. tölul. sömu málsgreinar orðast svo: Heilbrigðisnefnd.
c. 7. tölul. 1. mgr. fellur brott og jafnframt orðast 10. tölul., er verður 9. tölul., sömu málsgreinar svo: Sjávarútvegs- og landbúnaðarnefnd.
2. gr.
Í stað orðanna „efnahags- og viðskiptanefndar“ í 3. málsl. 2. mgr. 25. gr. laganna kemur: efnahags- og skattanefndar, og í stað orðanna „Efnahags- og viðskiptanefnd“ í 5. málsl. sömu málsgreinar kemur: Efnahags- og skattanefnd.3. gr.
Lög þessi öðlast þegar gildi.Greinargerð.